Stjórnendur samstæðu OR meta og stýra loftslagstengdri áhættu hjá samstæðunni.
Árið 2020 var unnið að gerð hnitmiðaðrar áætlunar um aðlögun að loftslagsvá í starfsemi OR. Fyrsta áfanga af tveimur er lokið þar sem þverfagleg teymi innan fyrirtækisins hafa kortlagt loftslagsáhættu í starfseminni og komið á samskiptaleiðum innan OR og með utanaðkomandi hagsmunaaðilum til að tryggja skilvirkt upplýsingaflæði.
Samstæða OR hefur greint og metið alvarleika áhrifa vegna loftslagsbreytinga á starfsemi sína og viðeigandi viðbrögð við þeim. Með því að leggja áherslu á veitukerfin hafa verið greindir möguleikar til aðlögunar að meiri úrkomuákefð, leysingum, breytingum á hitastigi og sjávarborðshækkun. Í því sambandi fylgist vatnsveitan með örverumengun í neysluvatni í rauntíma þannig að unnt sé að bregðast við og tryggja gæði þess. Ennfremur leggur hitaveitan mat á eftirspurn eftir heitu vatni til framtíðar og bætta nýtingu þess til að tryggja afhendingaröryggi. Í fráveitunni er horft til spár um sjávarborðshækkun og úrkomuákefðar í áætlanagerð. Auk þess er horft til blágrænna ofanvatnslausna til að veita regnvatni af götum og vegum og hreinsa það áður en það rennur út í ár og vötn; aðgerða sem einnig auka líffræðilegan fjölbreytileika og bæta borgarumhverfi.
Þessi verkefni eru í senn mótvægisaðgerðir og aðlögun vegna loftslagsvár. Veitur vinna að innleiðingu þeirra í samstarfi við sveitarfélög.