OR samstæðan hefur verið í fararbroddi í nýsköpun og þróun á sviði loftslags- og umhverfismála undanfarinn áratug. Á meðal verkefna sem þegar hafa skilað árangri eru;
- minnkun losunar koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun með bindingu þessara jarðhitalofttegunda í stein, sjá myndband að neðan,
- undirbúningur að minni losun frá Nesjavallavirkjun,
- samstarf við svissneska fyrirtækið Climeworks um hreinsun og bindingu koltvíoxíðs úr andrúmslofti á Hellisheiði og
- aðstöðusköpun vegna orkuskipta í samgöngum með uppsetningu á hlöðum fyrir rafbíla.
Mörg þessara árangursríku verkefna hafa leitt af sér framhaldsverkefni auk þess sem nýjungar eru þróaðar. Unnið er samkvæmt fjölda samstarfssamninga og -áætlana um vísindi og tækni við háskólasamfélagið innanlands og erlendis. Samstarf atvinnulífs og háskólasamfélagsins er oftar en ekki forsenda þess að hugmyndir geti þróast yfir í raunveruleg verkefni sem nýtast atvinnulífinu.
Dæmi um slík verkefni sem unnið er að hjá OR samstæðunni og vonir eru bundnar við:
- Sporlétt vinnsla jarðhita
- Þróun á bindingu koltvíoxíðs með Carbfix-aðferðinni frá metanstöð Sorpu
- Viljayfirlýsing við stóriðjuna og stjórnvöld um kolefnisbindingu
- Vetnisframleiðsla á Hellisheiði
- Djúpborun
- Stjórnun örvaðrar skjálftavirkni
- Bætt auðlindanýting á lághitasvæðum
- Gæði vatns og betri yfirsýn yfir dreifikerfi
- Þróun á nýtingu á lífbrjótanlegum fráveituúrgangi
- Frekari rafvæðing hafna vegna stórra skipa