Innan samstæðu OR eru sjö félög sem lúta sérstakri stjórn. Stjórnarfólk móðurfélagsins skal m.a. hafa þekkingu og reynslu sem hæfir þeirri ábyrgð sem stjórnarsetunni fylgir. Samsvarandi kröfur eru gerðar um setu í stjórn dótturfélaga.
Tvær nefndir starfa í umboði stjórnar OR, starfskjaranefnd og endurskoðunarnefnd. Formaður starfskjaranefndar er kona. Endurskoðunarnefnd er sameiginleg með samstæðu Reykjavíkurborgar og tilnefnir stjórn OR fulltrúa í nefndina. Sá fulltrúi er kona.
Stjórnarsæti innan samstæðunnar eru alls 37 en sama fólk skipar stjórn OR og OR Eigna og einnig ON og ON Power. Sætin 37 eru skipuð 18 konum og 19 körlum. Konur gegna formennsku í fimm af stjórnunum sjö; stjórn OR og þar með stjórn OR Eigna, stjórn Veitna og stjórn Orku náttúrunnar og þar með ON Power. Tveir áheyrnarfulltrúar eru í stjórn OR; annar kona, hinn karl.