Við gerð sjálfbærniuppgjörs OR er stuðst meðal annars við leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út í mars 2017 og uppfærðar voru í maí 2019. Leiðbeiningar Nasdaq byggja á ráðleggingum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, Samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er bætt við tilvísunum í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, þar sem það á við, og tekið tillit til laga um breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006, með síðari breytingum (einföldun og innleiðing ársreikningatilskipunar 2013/34/ESB), nr. 73/2016.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að leggja sérstaka áherslu á fimm af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í starfsemi samstæðunnar. Framsetning þeirra hér í skýrslunni tekur mið af þeim áherslum. Markmiðin eru:
- #5 Jafnrétti kynjanna
- #6 Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
- #7 Sjálfbær orka
- #12 Ábyrg neysla og framleiðsla
- #13 Aðgerðir í loftslagsmálum
Efnistök skýrslunnar voru kynnt á tveimur fundum með hagsmunaaðilum; 5. febrúar umhverfisþættir og 19. febrúar samfélagsþættir og stjórnhættir.
Þessi komu einkum að gerð Ársskýrslu OR 2020: Eiríkur Hjálmarsson sérfræðingur í samfélagsábyrgð, Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisstjóri OR, Ólöf Snæhólm Baldursdóttir sérfræðingur í samskiptamálum, Þorsteinn Ari Þorgeirsson, sérfræðingur í jarðvísindum, Snorri Jökull Egilsson og Kevin Dillman umhverfisgreinendur, Víðir Ragnarsson verkefnastjóri í jafnréttis- og mannauðsmálum og Davíð Örn Ólafsson, sérfræðingur í fjárstýringu og greiningum á fjármálasviði OR.
Vefun: Overcast.
Ljósmyndir teknar úr Hallgrímskirkjuturni árin 1987 og 2021, sem prýða forsíðu og kaflasíður skýrslunnar tóku þeir Haukur Már Haraldsson og Atli Már Hafsteinsson.