Stjórnhættir OR eiga að tryggja fagmennsku, hagkvæmni, ráðdeild, gegnsæi og ábyrgð í rekstrinum. Um meginstarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur gilda lög nr. 136/2013. Á árinu 2014 endurnýjuðu eigendur fyrirtækisins sameignarsamning um starfsemina. Þá var einnig endurskoðuð eigendastefna. Í þeim er kveðið á um stjórnhætti. Við gerð þessara skjala, samþykkta fyrir dótturfélög OR og starfsreglur fyrir allar stjórnir, var tekið mið af þeim leiðbeiningum sem Viðskiptaráð vann í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq.
OR telur að stjórnarhættir fyrirtækisins uppfylli leiðbeiningarnar.
Veitur reka rafveitur, hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur sem flestar eru með sérleyfi. Orka náttúrunnar vinnur rafmagn og heitt vatn í virkjunum og er sölufyrirtæki rafmagns, Gagnaveita Reykjavíkur rekur ljósleiðaranet til fyrirtækja og heimila og Carbfix er sprotafyrirtæki til útbreiðslu samnefndrar aðferðar til kolefnisförgunar. Móðurfélagið - Orkuveita Reykjavíkur - er þjónandi móðurfélag í samstæðunni sem styður við starfsemi dótturfélaganna með því að veita ýmsa miðlæga þjónustu.